27.05 2013
Endurnýjun og uppfærsla
Reginn hf. auglýsir eftir tilboðum í endurgerð og breytingar á innra skipulagi Ofanleitis 2 í Reykjavík. Ofanleiti 2 er rúmlega 8.000 m2 skrifstofu- og skólabygging. Verkið felst í breytingu á innra skipulagi, innri endurnýjun og uppfærslu til að aðlaga hús þörfum nýs leigutaka (Verkís).
Verkefnið skiptist upp í tvo áfanga, stærri áfanginn og sá fyrri verður unninn í júní – september 2013.
Útboðsgögn er hægt að nálgast frá og með mánudeginum 27. maí 2013 kl. 13:00 á skrifstofu Arkís Arkitekta ehf., Höfðatúni 2, 105 Reykjavík, eða með því að senda tölvuskeyti á Halldór Þ. Arnarson, halldor@ark.is og fá gögn á rafrænu formi.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Arkís Arkitekta, Höfðatúni, eigi síðar en kl. 11:00 miðvikudaginn 12. júní 2013.
Vakin er athygli á lengdum skilafresti tilboða og vettvangsskoðun mánudaginn 3. júní kl. 14:00.