Um Arkís

ARKÍS er framsækin arkitektastofa á sviði byggingarlistar, hönnunar, skipulags og vistvænnar hönnunar. Frá stofnun, árið 1997, hefur ARKÍS starfað bæði innanlands og á alþjóðamarkaði og unnið að fjölbreytilegum verkefnum fyrir einkaaðila og opinberar stofnanir.

ARKÍS starfar eftir þeirri meginhugsun að öll hönnun mannvirkja snúist um að skapa umhverfi og aðstæður sem auka 
lífsgæði okkar. Þá skuldbindur ARKÍS sig til að stuðla að auknu vægi vistvænnar hönnunar.

ARKÍS hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Meðal nýlegra verka; ARKÍS arkitekta má telja Náttúrufræðistofnun Íslands, Snæfellsstofu, Háskólann í Reykjavík og turninn Smáratorgi.

Aðal skrifstofur Arkís arkitekta er í nýlega endurgerðu húsnæði sem var endurhannað af eigendum stofunnar. Við erum staðsett í Kóparvogi á móti Kársnesinu ásamt því að vera með útibú á Austurvegi á Selfossi. Þar starfa 4 starfsmenn.